Boðið verður uppá föndurnámskeið fyrir félagsmenn Verslunarmannafélags Suðurlands í ár eins og fyrir síðustu jól en það heppnaðist einstaklega vel !

 

Í ár verður boðið uppá trémálun og er hægt að velja um 5 tegundir af hlutum til þess að búa til. Nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið og tilgreina hvaða hlut menn kjósa að búa til á námskeiðinu. Skráning fer fram á skrifstofu Verslunarmannafélags Suðurlands.

Pakkningarnar með hlutunum verða svo tilbúnar þegar þátttakendur mæta á námskeiðið og greiða menn fyrir þær á staðnum. Þátttakendum er velkomið að kaupa auka pakkningar ef þeir vilja, en athugið að skrá þær einnig inná skráningarlistann.

Eftirfarandi hluti er hægt að velja um :

 

,,Hreindýrahjörð með kerti"

Fallegur hreindýrakertastjaki sem einstaklega einfalt er að búa til ! Þrjú hreindýr saman á platta.

Verð kr. 2600.-
(alm.verð kr. 2900.-)


,,Hreindýr með kerti”
Fallegur hreindýrakertastjaki, eitt hreindýr á platta. Einfalt að búa til.

Verð kr. 1200.-
(alm.verð kr. 1400.-)

 

,,Stúfur passar póstinn”
Yndislega krúttlegur jólasveinn sem situr og heldur á körfu sem hafa má jólapóstinn í...eða jólanammi ?

Verð kr. 3300.-
(alm.verð kr. 3600.-)


,,Jólasveinadagatal”

Jólalegur rammi utanum A4 stærð af dagatali (ath. hægt er að prenta út dagatölin og minnisblöðin af vefsíðunni okkar www.fondur.is).

Verð kr. 2900.-
(alm.verð kr. 3300.-)


,,Jólatré”
3 jólatré saman í pakka, 45 cm, 55 cm og 65 cm há með stjörnum. Mjög einföld samsetning og málun !

Verð kr. 2900.-
(alm.verð kr. 3300.-)


Hlakka til að sjá ykkur í jólaföndurfjöri !

Ásdís Erla