Hönnun Ásdísar Erlu Guðjónsdóttur

Jóladagatal fyrir börnin!

Hér er einföld og góð hugmynd af jóladagatali.

  • Notað er 14 cm breitt furuborð (ca. 2 cm á þykkt) í dagatalið.
  • Lengd dagatalsins í heildina er 110 cm.
  • Teiknið höfuð efst á spýtuna (ca. 20 cm á lengd) og útfrá höfðinu eru smá aflíðandi axlir.
  • Boruð eru göt á hliðarnar á spýtunni þar sem tölustafirnir eru síðar málaðir við hliðina á þeim. Boruð eru 23 göt en tvö göt hjá tölunni 24 eru boruð efst á jólatréð.
  • Spýtan er máluð rauð (t.d. Apple Spice frá FolkArt)
  • Andlitið er málað drapplitað (t.d. Camel frá FolkArt) og roði er þurrburstaður í kinnar jólasveinsins (t.d. með Huckleberry frá FolkArt)
  • Jólatré er málað neðst á spýtuna með grænum lit (t.d. Olive Green frá FolkArt) og lýsa má græna litinn með ljósum lit til þess að fá pínu líf í tréð :-)
  • Tölustafirnir eru málaðir við hliðina á boruðu götunum með ljósum lit (t.d. Clay Bisque frá FolkArt) og einnig ,,Gleðileg jól" á jólatréð.
  • Á miðju spýtunnar, milli töfustafanna, er skrifað ,,DESEMBER" með grænum lit.
  • Notuð er moppa í skegg jólasveinsins, en að sjálfsögðu má einnig nota eitthvað annað í skeggið eins og t.d. ,,Teddy garn" eða óbleikjað léreft sem er rifið niður í ræmur.
  • Skeggið er límt á andlitið með límbyssu og er skeggið límt þannig niður að það vísar upp, þ.e.a.s. í átt að húfunni. Síðan er það látið falla niður þegar það er orðið þurrt. Yfirvaraskeggið er búið til á þann hátt að lagðar eru nokkrar lengjur saman og eru þær bundnar saman í miðjunni með einni lengju. síðan er það límt fyrir ofan skeggið.
  • Hár jólasveinsins er búið til á sama hátt og yfirvaraskeggið. Það er límt á koll jólasveinsins og kemur það síðan undan húfunni.
  • Þá er að búa til húfu á jólasveininn. Sniðin er ferhyrningur úr rauðu efni 40 cm x 60 cm. 60 cm hliðin er saumuð saman (eða einfaldlega límd með límbyssunni) síðan er brett nokkrum sinnum uppá húfuna og er hún límd á höfuð jólasveinsins. Bundið er utanum endann á húfunni með basti eða snæri.
  • Augu eru teiknuð á jólasveininn með svörtum penna.
  • Bútið niður 24 stk af blómavír, 10 cm á lengd. Vírinn er þræddur í götin sem boruð voru í spýtuna og festur saman, þannig að vírinn myndar lykkju sem pakkarnir eru síðan festir á . Boruð voru tvö göt efst á jólatréð til þess að lykkjan geti verið efst á trénu, vírinn er festur á bakhliðinni :-).
  • Það getur verið falleg að ,,skvetta" pínulítilli hvíti málningu yfir dagatalið, til þess að fá snjó á það. Gott er að nota tannbursta til þess. Sett er smá málning í tannburstann og síðan strýkur maður fingrunum yfir burstann í átt að dagatalinu, þá ætti að svettast á það.....um að gera bara að æfa sig!
  • Boruð eru göt í axlir jólasveinsins og vír festur á milli til þess að hægt sé að festa það uppá vegg.
  • Að þessu loknu ætti dagatalið að vera tilbúið til þess að gleðja litlu krílinn og stytta þar með biðina eftir jólunum !