
Ef þið eruð
að búa til tréhlut sem á að
standa úti borgar sig að nota vatnsheldan krossvið.
__________________________________________________________
Það er allt í
lagi að nota venjulega föndurmálningu
á tréhlut sem á að standa úti,
en mikilvægt er að lakka yfir hlutinn með
glæru lakki á eftir.
___________________________________________________________
Það er algjör
snilld að mála doppur með því
að snúa pensli við og nota skaftið
á penslinum við doppumálunina!
_____________________________________________________
Ef þið ætlið
að búa til krítartöflu er hægt
að nota sérstaka krítarmálningu
en það er líka hægt að mála
með svartri föndurmálningu og fara svo
yfir með möttu glæru lakki tvær umferðir
og það virkar sem fín krítartafla
;-)
_____________________________________________________
Vanti
ykkur að gera við regnföt sem hafa farið
sundur á suðunni , þá er ráðið
að leggja saman sárið og setja tvöfaldan
álpappír ofan á og renna yfir með
tinbolta eða straujárni
rólega og það virkar !
______________________________________________________
Sumir eru hræddir við
og treysta sér ekki til þess að teikna
andlit eða mynstur á tréhlut sem verið
er að búa til. Gott ráð er að
setja pappírssniðið yfir hlutinn, setja
kalkípappír á milli og fara ofaní
mynstrið sem er á sniðinu með blýanti.
Þá ,,kalkerast" það yfir á
hlutinn og hægt er þá að fara ofaní
með málningu eða tússi ;-)